13.04.2024
Degenerative Myelopathy eða DM í SchäferStjórn Schäferdeildarinnar hafa borist þær fréttir að stökkbreyting sem veldur auknum líkum á Degenerative Myelopathy eða DM hafi greinst í schäferhundum hér á landi í fyrsta skipti svo vitað sé.
DM er taugahrörnunarsjúkdómur hjá hundum sem leggst á mænu og veldur hægfara lömun sem byrjar í afturfótum. DM hefur verið þekktur sjúkdómur í þýska fjárhundinum frá 8. áratug síðustu aldar. Í fyrstu var hann talinn einskorðast við tegundina en hefur í seinni tíð greinst hjá fleiri tegundum. Hægt er að lesa ýtarlega grein um DM undir heilbrigði hér á síðunni. Stjórn vill benda ræktendum á að kynna sér sjúkdóminn nánar, 24.03.2024
Páskaganga Schäferdeildarinnar 2024Páskaganga Schäferdeildarinnar var haldin í miðbæ Reykjavíkur í sólskinsveðri þann 23.mars.
Góð mæting var í gönguna og vöktu hundarnir okkar mikla athygli, bæði meðal íbúa og ferðamanna. Deildin vill þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og hlökkum við til að sjá sem flesta aftur í næstu göngu sem verður auglýst síðar. 17.03.2024
Páskaganga SchäferdeildarinnarPáskaganga Schäferdeildarinnar verður haldin næstu helgi, laugardaginn 23.mars. Við ætlum að hittast klukkan 13 við Hallgrímskirkju og rölta þaðan léttan hring í bænum.
Hlökkum til að sjá sem flesta! 16.03.2024
Páskabingó Schäferdeildarinnar 2024
08.03.2024
Tvöföld deilarsýning Schäferdeildarinnar 2024Fyrsta mál á dagskrá hjá nýrri stjórn deildarinnar var að skipuleggja flotta deildarsýningu og var ákveðið að fá tvo dómara að þessu sinni. Sýningin verður haldin helgina 18.-19. maí á glæsilegu svæði í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Deildarsýningar eru ein besta leið fyrir ræktendur til þess að fá stöðumat á því hvað ræktunin þeirra stendur og einu skiptin sem Schäfer eigendur fá sérhæfða dómara á tegundina. Í ár koma þau Oddbjørn Winther frá Noregi og Ulla Hansen frá Danmörku til okkar, en eru þau bæði mjög vinsælir dómarar sem og flottir ræktendur. Á laugardeginum 18. maí mun Oddbjørn Winther dæma. Hann kemur eins og fyrr segir frá Noregi og ræktar undir hinu þekkta ræktunar nafni Owinn’s. Oddbjørn dæmir bæði á SV og FCI sýningum, hefur réttindi til að gefa hundum svokallaðan ræktunardóm eða Avlskåring, ásamt því að hafa ræktað tegundina í yfir 40 ár. Á sunnudeginum 19. maí dæmir hin Danska Ulla Hansen, en eins og Oddbjørn hefur hún ræktað tegunda í tugi ára og dæmir um allt meginland Evrópu. Ulla ræktar undir nafninu Team Paka’s og hafa hundar frá henni náð frábærum árangri í Danmörku og víðar. Báðir dómararnir okkar búa yfir áratuga reynslu og víðtækri þekkingu á tegundinni. Hlakkar stjórnin mikið til þess að fá þau til okkar og viljum við hvetja alla til þess að skrá á þessa flottu sýningu, en skráning opnar á næstu dögum. Einnig viljum við benda á að ef ræktendur eða fyrirtækja eigendur vilja styrkja sýninguna að hafa samband við stjórn deildarinnar í tölvupósti : [email protected] Skráning opnar á næstu dögum á hundavef.is Hlökkum til að sjá ykkur helgina 18.-19. maí í Guðmundarlundi. 4.03.2024
Norðurljósasýning HRFÍ 2024
Þá er fyrstu sýningu ársins lokið og var flott skráning í tegundinni að vanda.
Dómarinn að þessu sinni var Diane Stewart-Ritchie frá Írlandi og byrjaði hún á að dæma síðhærða afbrigði tegundarinnar. Besti rakki tegundar að þessu sinni var ISShCh ISW-23 Ásgarðsfreyju Skaðvaldur úr meistaraflokki og hlaut hann sitt fyrsta alþjóðlega meistarastig. 3. Besti rakki tegundar og besti ungliði tegundar varð ISJW-23 Ice Tindra Team Günter, hlaut hann sitt fyrsta Íslenska meistarastig, einnig fékk hann sitt fyrsta alþjóðlega ungliða meistarastig sem og sitt annað Íslenska ungliða meistarastig. Getur hann því nú sótt um titilinn ISJCh Íslenskur ungliðameistari. Óskar stjórn eiganda hans og ræktanda til hamingju með nýjan titil. Besta tík tegundar, besti öldungur tegundar og besti hundur tegundar var eins og svo oft áður C.I.E ISShCh NORDICCh ISVETCH NLM RW-17 ISVW-22-23 Ice Tindra Joss með Íslenskt öldunga meistarastig. Önnur besta tík tegundar, með bæði sitt þriðja Íslenska og annað alþjóðlega meistarastig, var úr vinnuhundaflokki OB-I Forynju Einstök. Getur hún því sótt um titilinn ISCh Íslenskur meistari, óskar stjórn eiganda hennar og ræktanda til hamingju. Besta ungliða tíkin og annar besti ungliði tegundar var Ice Tindra Team Gabby með sitt fyrsta Íslenska og alþjóðlega ungliða meistarastig. Besta ræktunarhóp tegundar átti Ice Tindra ræktun. Joss átti frábæra byrjun á sýningarárinu, en bæði varð hún í öðru sæti í tegundarhópi 1, og endaði hún svo á því að verða besti öldungur sýningar. Glæsilegur árangur og óskar stjórn deildarinnar eiganda hennar og ræktanda til hamingju með hana. Að loknum dómi síðhærðu hundana hófst dómur á þeim snögghærðu og besta hvolp tegundar 6-9 mánaða valdi Diane tíkina Ice Tindra H Halo. Úr meistaraflokki valdi dómarinn besta rakka tegundar, ISShCh Pablo vom Team Panoniansee og hlaut hann þar sitt þriðja alþjóðlega meistarastig. Annar besti rakki tegundar með sitt þriðja Íslenska meistarastig var BH IPG1 AD Kkl1 WH ISW-23 Ibra del Rione Antico, getur hann því sótt um titilinn ISCh Íslenskur meistari. Óskar stjórnin eiganda hans til hamingju með titilinn. Besti öldungur tegundar varð ISShCh IsVetCh RW-23 ISW-22 ISVW-22 ISVW-23 Ice Tindra Jessy. Besta tík tegundar og besti hundur tegundar kom einnig úr meistaraflokki ISShCh ISJCh Ice Tindra Liv með Alþjóðlegt meistarastig, en hún bíður staðfestingar á alþjóðlegum sýningar meistaratitli svo bæði Íslenska meistarastigið og það alþjóðlega runnu niður til annarar bestu tíkar tegundar Ice Tindra Team Foxy. Besti ungliði tegundar varð Forynju Indæla Píla, en hún hlaut þar sitt fyrsta Íslenska og alþjóðlega ungliða meistarastig. Besta ræktunarhóp tegundar og 4. Besta ræktunarhóp dagsins átti Ice Tindra ræktun. Óskar stjórn Schäferdeildarinnar öllum innilega til hamingju með árangur þessarar fyrstu sýningar ársins 2024. Einnig vill stjórnin þakka fyrir frábæran áframhaldandi stuðning frá styrktaraðila deildarinnar, Dýrafóður.is. 27.02.2024
Hlýðnipróf 25.febrúarFyrsta hlýðnipróf ársins var haldið síðastliðinn sunnudag þar sem sex hundar mættu til leiks og þarf af tveir schäferhundar.
Hlýðni II 2.sæti með 135,5 stig og 3.einkunn ISJCH ISJW22 OB-I ISW23 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir Hlýðni III 1.sæti með 278,5 stig og 1.einkunn ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Forynju Bara Vesen lét sér ekki nægja að klára með 1.einkunn heldur var þetta í þriðja sinn sem hún náði þeim árangri og hlaut hún þar með titlana OB-III og ISObCh! Hún er þriðji schäferhundur landsins til þess að hljóta þessa titla og gerast íslenskur hlýðnimeistari og óskum við henni og eiganda hennar innilega til hamingju með þennan árangur. 27.02.2024
Páskabingó SchäferdeildarinnarÞann 14.mars næstkomandi ætlar Schäferdeildin að halda Páskabingó í Sólheimakoti
Fjöldinn allur af glæsilegum vinningum eru komnir í hús sem heppnir bingóspilarar eiga tækifæri á að vinna Myndir af vinningum og kynningar á styrktaraðilum munu koma inn á viðburð á Facebook síðunni okkar sem og instagram síðuna okkar, svo við hvetjum ykkur til þess að fylgjast með þar Kaffiveitingar verða til sölu á staðnum Hlökkum til að sjá ykkur sem flest eiga góðan dag með okkur þann 14.mars! 20.02.2023
Stórhundadagar í Garðheimum 24-25 feb.Stórhundadagar Garðheima verða haldnir næstu helgi frá 13-16 bæði laugardag og sunnudag þar sem við í Schäferdeildinni ætlum að vera með bás.
Við óskum eftir sjálfboðaliðum til þess að sitja vaktina með okkur og vekja athygli á frábæru tegundinni okkar. Ef þið hafið áhuga á að taka þátt, vinsamlegast fyllið þá út skráningarformið hér fyrir neðan. Skráið klukkan hvað, hversu lengi og hvorn daginn þið viljið vera. ATH. að svona viðburður hentar ekki öllum hundum, þetta er mikið áreiti sem hundarnir þurfa að þola. Hvolpar þurfa að vera fullbólusettir og lóðatíkur mega ekki vera á svæðinu. Ef þið fáið engan staðfestingarpóst frá okkur hafið þá endilega samband ([email protected]) Hlökkum til að sjá ykkur á Stórhundadögum í Garðheimum um helgina! 19.02.2023
Febrúar ganga SchäferdeildarinnarFebrúarganga deildarinnar fór fram sunnudaginn 18. febrúar. Veðrið lék aldeilis við okkur og gengum við skemmtilegan hring í miðbæ Hafnarfjarðar. Frábær mæting var í gönguna og vöktu hundarnir okkar mikla lukku og athygli innan bæjarins.
Stjórn þakkar þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og rölta með okkur, við hlökkum til að sjá enn fleiri í næstu göngu sem verður auglýst síðar! 17.02.2023
!!! ATH. Breytt staðsetning á göngunni !!!Breytt staðsetning á göngunni á morgun, hittumst klukkan 12 við Hafnarfjarðarkirkju og göngum saman léttan hring í bænum.
15.2.2024
Febrúar ganga Schäferdeildarinnar !Sunnudaginn 18.febrúar verður næsta ganga Schäferdeildarinnar haldin
Við ætlum að hittast klukkan 12 við botn Hvaleyrarvatns í Hafnarfirði og ganga þar saman léttan hring í kringum vatnið Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! 12.2.2024
Rallý hlýðni SchäferdeildarinnarNæsta Rallý æfing Schäferdeildarinnar verður haldin næstkomandi þriðjudag í húsnæði HRFÍ - Melabraut 17 frá klukkan 17 til 18
Kjörið tækifæri að æfa sig í sömu aðstæðum og próf eru haldin! Allir velkomnir 04.02.2024
Rallý æfingar SchäferdeildarinnarSchäferdeildin ætlar að fara af stað með Rallý hlýðni æfingar á þriðjudögum kl 17. - 18.
Æfingarnar verða haldnar í húsnæði HRFÍ - Melabraut 17. Allir eru velkomnir ! Stórir eða smáir, ungir eða gamlir, byrjendur eða lengra komnir. Skiptið kostar 2.000 kr á mann. Hlökkum til að sjá ykkur ! 30.01.2024
Fyrsta ganga ársinsSunnudaginn 28. janúar fór fram fyrsta ganga deildarinnar í góðu veðri. Gangan átti að vera deginum áður en ákvað var að fresta vegna veðurs.
Gangan hófst við Árbæjarkirkju og gengum við góðan hring í Elliðárdalnum. Í gönguna mættu 15 ferfætlingar á öllum aldri, sá yngsti var 10 mánaða og sá elsti 10 ára. Deildin vill þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og hlökkum við til að sjá sem flesta aftur í næstu göngu sem verður 18.febrúar, staðsetning verður auglýst síðar. 28.01.2024
Hvolpasýning HRFÍ 27. janúarLaugardaginn 27. janúar hélt Hundaræktarfélag Íslands hvolpasýningu í nýja húsnæði HRFÍ að Melabraut 17.
Góð skráning var á sýninguna en í heildina voru átta schaferhvolpar skráðir og voru þar af sjö snögghærðir og einn síðhærður, allir í ungviða flokki 3-6 mánaða. Dómari var Erna Sigríður Ómarsdóttir. Í flokki síðhærðra var það Ice Tindra H Háseti sem varð besta ungviði tegundar. En í flokki snögghærðra voru það got systkinin Ice Tindra I Ibra og Ice Tindra I Ida sem unnu sína flokka og kepptu um besta ungviði tegundar. Ice Tindra I Ida hafði betur gegn bróður sínum og varð besta ungviði tegundar. Hún kláraði daginn svo á því að vera valin Besta ungviði sýningar ! Deildin óskar eigendum og ræktendum þessara hvolpa innilega til hamingju með frábæran árangur. 27.01.2024
!!! ATH. Þorragangan færð vegna veðurs !!!Vegna veðurs höfum við ákveðið að fresta göngunni þar til á morgun Hittumst klukkan 14 á morgun við Árbæjarkirkju Hlökkum til að sjá ykkur! 24.01.2024
Þorra ganga Schäferdeildarinnar.Schaferdeildin ætlar að vera með fyrstu göngu ársins núna á laugardaginn næsta, 27. janúar kl 14.00. Við ætlum ađ hittast á bílaplaninu við Árbæjarkirkju og ganga þaðan léttan hring niður í Elliðarárdal.
Hlökkum til að sjá sem flesta, göngur eru skemmtileg umhverfisþjálfun fyrir alla ferfætlinga og góð skemmtun fyrir tvífætta. Allir að muna eftir góða skapinu og kúkapokum! 23.01.2024
Ársskýrsla og ársreikningurÁrsfundurinn var haldinn þann 18. janúar 2024. Farið var yfir ársskýrslu, reikninga og kosið var í nýja stjórn. Alls voru fimm sæti laus, þrjú til tveggja ára og tvö til eins árs. Í stjórn sitja:
Formaður Eygló Anna Ottesen Guðlaugsdóttir Varaformaður Hildur Sif Pálsdóttir Gjaldkeri Marta Sólveig Björnsdóttir Ritari Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Meðstjórnandi Karolina Aleksandra Styrna Ársskýrslu og ársreikning má lesa hér. Ný stjórn hlakkar til að taka við keflinu og plana næstu mánuði. 04.01.2024
Ársfundur SchäferdeildarinnarÁrsfundur Schäferdeildar HRFÍ verður haldinn fimmutdaginn 18. janúar 2024 kl.18:30 á skrifstofu HRFÍ, Melabraut 17 Hafnarfirði
Dagskrá fundar 1. Kosning fundarstjóra og ritara 2. Ársskýrsla deildar 3. Reikningar deildarinnar 4. Kosning stjórnar (4 sæti laus. Tvö til tveggja ára og tvö sæti til eins árs) 5. Önnur mál Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Hlökkum til að sjá ykkur Stjórn Schäferdeildar |
Nýlega uppfært:
|